Íbúar Rio De Janeiro í Brasilíu eru æfir yfir þeirri ákvörðun svonefnds Viradouro-hóps að velja sjö ára stúlku, Juliu Lira að nafni, til að gegna hlutverki sambadrottningar á árlegri samba-stórhátíð borgarinnar.
Hlutverk sambadrottningarinnar hefur hingað til að jafnaði verið í höndum fáklæddra fyrirsæta, sem minna helst á klámdrottningar og er ætlað að æsa upp mannfjöldann í trylltan dans. Þykir mörgum því verulega undarlegt að sjö ára stúlka, sem er einmitt dóttir forseta Viradouro-hópsins, skuli gegna því hlutverki.
Dómari nokkur hefur hótað því að koma í veg fyrir að stúlkan stígi á stokk, en pabbinn stendur fastur á sínu og segir: „Sá maður sem horfir á sjö ára barn og finnur fyrir einhvers konar örvun ætti að fara til læknis.“
Djöfull er hann fokkin ljótur maður
Er það ekki bara einhver öfundsýki í óaðlaðandi rauðsokkum. Hverjum er ekki sama hvað þessum...
Hún er svo töööfff
Terry Richardson er svalasti ljósmyndari ever. Hann er með þessarri töku búinn að hirða síðasta...
Alveg æðisleg og svona líka skemmtilega rugluð:)